Ég man...
http://ferming1979.barnaland.is
Arnar Már hefur látið okkur halda að hefði verið saklaus unglingur... miðað við sögurnar sem hann hefur sagt hér....
En þessi miði var sérstaklega áhugaverður í ljósi þess.
Föstudagsblogg til fagnađar..;)
Er spennt fyrir þessu 10. bekkjar útskriftar afmæli, þá yrði aftur hittingur eftir 2 ár..;) Svoldið styttra en eftir 5 ár..!!!
Alveg spurning hvort ég næ ekki að plata Þóri minn í einhverja dans vitleysu, við tækluðum þetta svo rosalega síðast sko..;)
Þó að við í nefndinni hefðum hugsað fyrir flestu þá klikkuðum við samt á nokkrum smá atriðum, eins og míkrófón..:) Hefði gefið mikið fyrir að sitja útí sal og horfa á okkur Þórdísi frænku reyna að halda okkur á floti og ykkur í skefjum..!!! Meeeen, þetta hlýtur að hafa verið ógeðslega fyndið..!!
Skemmti mér allavega eins og í sögu og vonandi hittumst við hress sem allra fyrst á ný..:)
Knúús og kossar Linda María..:*
Ég man...
á ég að skanna?
Fæ ég 13 komment??... sýni það þegar komin eru komment frá 13 aðilum.
Enn berast myndir.... ekki hćtta
meira á http://ferming1979.barnaland.is
Enn fleiri myndir
http://ferming1979.barnaland.is
Fleiri myndir komnar
Eins er kominn Flickr - linkur á myndirnar hennar Kamillu.
Bíð spennt eftir fleiri myndum frá borðinu sem tók flestar myndir, eins frá Eysteini, Lindu Maríu og fleirum...
smá aukablogg!!
Jæja þetta heppnaðist mjög vel og þökk sé frábærri nefnd. Stóðu sig eins og hetjur. Ég man að Sólrún var að reyna að sópa mér út þarna í lokin:). Engin málverk rifin niður og engar gloríur gerðar inn á KARLAKLÓSETTI!líkt og fyrir 5 árum síðan!Það var nú ágætt. Ég vil þakka sérstaklega Reyni Sævarssyni fyrir skemmtilegt kvöld ,kallinn í banastuði ,aðeins kjaftaði frá þarna í spurningakeppninni, en slapp þó fyrir horn. Allir fínir og flottir og virtust skemmta sér konunglega. Skellti mér í miðbæ Keflavíkur með jakkafatastrákunum til frekari skemmtunar og sá ég að fleiri létu slag standa ogskelltu sér einnig. Labbaði síðan gamla skrúðgarðinn heim sem mér fannst nú svo stór og mikill hér í old days ,en þarna var ég nú bara rétt um hálfa mínútu að ganga í gengum hann:)
Gummi Þór með sömu húfuna og bara allt við það sama nánast ,gott mál hafið það gott þangað til næst
Kveðja úr borginni
Áslaug Rut
Frábćrt kvöld í alla stađi!!!
Fermingarafmælið búið og ekki óeðlilegt að líkja þessu við jólin hjá litlu krökkunum. Búið að bíða síðan á áramótum og svo allt í einu er þetta búið. En nefndin á heldur betur hrós skilið fyrir frábært kvöld. Maturinn var mjög góður, salurinn tilvalinn, skemmtiatriði helvíti góð og ekki of löng, tónlistin fín. Allt í toppstandi. Ég vil líka þakka þeim sem mættu á körfuboltaleikinn og settu skemmtilegan svip á daginn. Maður fékk sting í magann þegar maður mætti í Heiðarskóla og það voru svona margir mættir. Ég bjóst við meiri mótspyrnu frá þeim grænu en við Keflvíkingar höfum greinilega ekki gleymt neinu.
En enn og aftur, þrefalt húrra fyrir nefndinni. Þið sjáið svo aftur um þetta eftir 5 ár og ég geri ráð fyrir að undirbúningur sé hafinn. Allavega veitir ekkert af því með Þóri nokkurn Þorsteins innan ykkar raða. Sá er ekkert vanur að stressa sig yfir hlutunum.
Sjáumst þegar við verðum 34 ára!!!
Takk fyrir kvöldiđ

Takk fyrir okkur!!
Þetta var svakalega gaman, takk fyrir að taka svona vel í afmælið, taka vel í þemað og takk fyrir að mæta.
Gerum þetta aftur eftir 5 ár, en munum eftir míkrófón!!
Myndir byrjaðar að berast, linkur til vinstri.
Myndir frá Báru Kolbrúnu og Þórdísi.